
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum leiðtoga í starf forstöðumanns umferðardeildar. Verkefni deildarinnar snúa að umferð og umferðaröryggi. Á deildinni vinna sex sérfræðingar í verkefnum sem snúa að úrvinnslu og greiningu gagna um umferð og umferðaröryggi á þjóðvegakerfinu ásamt rannsóknum, áætlanagerð og faglegri ráðgjöf á þeim sviðum.
Verkefni umferðardeildar eru m.a.
- Skipulagning, framkvæmd og úrvinnsla umferðartalninga, hraðamælinga og umferðarkannana
- Gerð og þróun umferðarlíkana, umferðarspáa og umferðargreininga
- Söfnun, úrvinnsla og greining gagna um umferðarslys og umferðaröryggi á þjóðvegakerfinu
- Gerð áætlana um aðgerðir til að bæta umferðaröryggi
- Framkvæmd og umsjón með umferðaröryggisúttektum á vegum og vegaumhverfi
- Rannsóknir, þróun og innleiðing nýrrar þekkingar og aðferðafræði á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
Helstu verkefni og ábyrgð
Forstöðumaður leiðir þróun og faglega starfsemi umferðardeildar. Forstöðumaður leiðir umbótaverkefni og stefnumótun, ásamt því að bera ábyrgð á hagkvæmum rekstri og skilvirkri starfsemi deildarinnar. Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra þróunarsviðs. Starfsstöð er í Garðabæ.
- Fagleg forysta og stefnumótun á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
- Yfirumsjón með umferðargreiningum, umferðarlíkönum, umferðarspám og rannsóknum á sviði umferðarmála.
- Ábyrgð á greiningu umferðaröryggis, umferðaröryggisúttektum og áætlanagerð um úrbætur á þjóðvegakerfinu
- Þróun aðferðafræði, verklags og gagnadrifinnar ákvarðanatöku á starfssviði deildarinnar
- Fagleg ráðgjöf til stjórnenda og annarra eininga Vegagerðarinnar
- Samstarf við innlenda og erlenda hagaðila á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
- Ábyrgð á áætlanagerð, kostnaðareftirliti og frávikagreiningu í rekstri deildar
- Ábyrgð á starfsfólki deildarinnar og góðu starfsumhverfi
- Fylgjast með alþjóðlegri þróun og nýsköpun innan fagsviðs deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni, auk hæfni til stefnumótunar og forgangsröðunar
- Háskólapróf á sviði verk- og tæknifræði, ásamt meistaraprófi sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af verkefnum sem umferðardeild fæst við
- Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar
- Árangursdrifni, frumkvæði og faglegur metnaður
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Kunnátta í norðurlandamáli er kostur
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Fjármálastjóri
GoPro

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið