

Þjálfari verslana og vörusölu
Við hjá Nova leitum að öflugum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á fólki, sölu og því að fara fram úr væntingum í þjónustu!
Við hjá Nova leitum að öflugum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á fólki, sölu og því að fara fram úr væntingum í þjónustu!
Við erum á spennandi vegferð með verslanir Nova. Við byggjum á sterkum grunni, en erum alltaf hungruð í að gera enn betur. Við viljum skora á okkur sjálf, lyfta upplifun viðskiptavina enn hærra og setja árangur verslana í næsta gír.
Til þess þurfum við manneskju sem sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir, manneskju sem er óhrædd við að skora á, hefur gaman af því að vinna með fólki og veit að besti árangurinn næst þegar fólkið í liðinu fær að njóta sín.
Hvað felst í starfinu?
Þú verður lykilmanneskja í að leiða og þróa verslanir Nova, styðja verslunarstjóra og byggja upp sterkan sölu- og þjónustukúltúr.
Dagarnir verða fjölbreyttir og verkefnin meðal annars að:
- Viðhalda neistanum í fólkinu okkar – þjálfa, hvetja og styðja verslunarstjóra og starfsfólk til að ná sínum besta árangri.
- Skapa árangur saman – setja skýr markmið, fylgja þeim eftir og fagna sigrunum, stórum sem smáum.
- Halda Nova upplifuninni í hæstu hæðum - tryggja að viðskiptavinir fái framúrskarandi þjónustu og góða ráðgjöf í öllum okkar verslunum.
- Sjá tækifærin í tölunum – nýta gögn og innsýn til að bæta sölu, þjónustu og rekstur.
- Gera góða hluti enn betri – einfalda vinnubrögð, bæta ferla og tryggja að daglegur rekstur gangi vel.
- Vera hluti af breytingunum – taka virkan þátt í að móta framtíð verslana Nova með frábæru fólki þvert á fyrirtækið.
Hver myndi blómstra í þessu hlutverki?
Við sjáum fyrir okkur manneskju sem hefur gaman af því að ná árangri í gegnum annað fólk.
Þú þarft ekki að kunna allt, en við viljum gjarnan að þú:
- Hafir reynslu af verslunarrekstri og vörusölu, brennandi áhuga á faginu og ófeimin/n/ð við að gera hlutina öðruvísi.
- Hafir reynslu af því að leiða fólk og hjálpa öðrum að ná árangri.
- Hafir góðan skilning á sölu, þjónustu eða rekstri.
- Eigir auðvelt með að skapa traust, hvetja fólk og gefa uppbyggilega endurgjöf.
- Hafir gaman af markmiðum, tölum og því að sjá árangur af góðri vinnu.
- Sért skipulögð, lausnamiðuð manneskja sem kemur hlutunum í framkvæmd.
- Hafir frumkvæði, forvitni og vilja til að læra og þróast.
Reynsla úr verslunarrekstri er kostur en alls ekki eina leiðin inn í starfið. Menntun sem nýtist í starfi er líka kostur, en við horfum fyrst og fremst til reynslu, hæfni og þess sem þú getur komið með í liðið.
Íslenska










