
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Vilt þú leiða öflugt teymi, byggja upp sterk viðskiptatengsl og hafa raunveruleg áhrif á samfélagið á Vestfjörðum?
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf útibússtjóra á Ísafirði. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þjónustu, viðskiptum og fólki, og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun bankans og viðskiptalífs á svæðinu.
Útibú Íslandsbanka á Ísafirði gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þjónar bæði einstaklingum og fyrirtækjum með fjölbreyttum fjármála- og ráðgjafalausnum. Sem útibússtjóri berð þú ábyrgð fyrirtækjaþjónustu útibúsins, sókn þess og vexti, rekstri útibúsins, árangri og þróun öflugrar þjónustu- og viðskiptamenningar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við fyrirtæki og samfélagið á svæðinu.
- Drífa sölu- og viðskiptaþróun og stuðla að áframhaldandi vexti.
- Fylgja eftir markmiðum, rekstraráætlunum og árangursmælikvörðum.
- Tryggja að starfsemin sé í samræmi við reglur, stefnu og verklag bankans.
- Taka virkan þátt í þróun og umbótum á þjónustu, ferlum og vinnubrögðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfileika.
- Frumkvæði, drifkraft og getu til að hrinda hugmyndum í framkvæmd.
- Sterkan viðskiptaskilning og reynslu af þjónustu eða sölu.
- Reynslu af stjórnunarstörfum og góðan árangur í að leiða fólk og teymi.
- Áhuga á þróun fjármálaþjónustu og nýtingu tækni til að bæta þjónustu og vinnulag.
- Góða greiningarhæfni og getu til að taka upplýstar ákvarðanir.
- Menntun sem nýtist í starfi.
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarstræti 1
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniÁreiðanleikiÁrsreikningarÁætlanagerðAðlögunarhæfniBreytingastjórnunDrifkrafturFagmennskaFjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiGreiningarfærniHeiðarleikiLeiðtogahæfniMannauðsstjórnunMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniSamningagerðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSjóðsstreymiSkipulagStarfsmannahaldStefnumótunSveigjanleikiTeymisvinnaVerkefnastjórnunVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (11)

Forstöðukona/-maður framkvæmda hjá Veitum
Veitur

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu
Landspítali

Framkvæmdastjóri
Blindrafélagið

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Framkvæmdastjóri
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

Forstöðumaður Íbúðakjarna í Ólafsvík
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Vals/Framkvæmdastjóri Hlíðarenda SES
Knattspyrnufélagið Valur

Technical Director
Fenris Creations