

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan stjórnanda til að leiða upplýsingatækni og stafræna þróun Hrafnistu og Sjómannadagsráðs. Um er að ræða nýtt lykilstarf hjá einu stærsta heilbrigðisfyrirtæki landsins, þar sem tækni gegnir sívaxandi hlutverki í að auka öryggi og vellíðan íbúa og gefa starfsfólki aukinn tíma við að sinna því sem mestu skiptir: fólkinu sjálfu.
Viðkomandi fær tækifæri til að leiða mótun stefnu og framtíðarsýn samstæðunnar í tækni og stafrænni þróun og leiða þá vegferð. Fram undan eru spennandi verkefni við að samræma og styrkja tæknilega innviði enn frekar og nýta stafrænar lausnir, velferðartækni og gervigreind í þágu íbúa, starfsfólks og reksturs samstæðunnar.
Starfið heyrir beint undir forstjóra Hrafnistu og nærtil Hrafnistu, Sjómannadagsráðs og annarra félaga samstæðunnar. Leitað er að stjórnanda sem hefur skýra heildarsýn en tekur jafnframt virkan þátt í útfærslu verkefna og leiðir þau áfram með starfsfólki og samstarfsaðilum.
Helstu verkefni:
- Móta stefnu og framtíðarsýn á sviði upplýsingatækni og stafrænnar þróunar og leiða innleiðingu í samstarfi við stjórnendur og starfseiningar.
- Yfirumsjón með rekstri, þróun og samræmingu upplýsingakerfa, tæknilegra innviða og notendaþjónustu með áherslu á öryggi, hagkvæmni og skilvirkni þvert á samstæðuna.
- Ábyrgð á upplýsinga- og netöryggi, persónuvernd, rekstraröryggi og samfellu upplýsingakerfa.
- Öflugt samstarf um hagnýtingu velferðartækni og gervigreindar í þjónustu við þjónustuþega og til stuðnings starfsfólki.
- Uppbygging samræmdra gagnamála samstæðunnar; skipulag gagna, yfirsýn og nýting þeirra til greininga og ákvarðanatöku í samvinnu við aðra stjórnendur.
- Mótun stafræns vinnustaðar þar sem starfsfólk hefur greiðan og öruggan aðgang að þeim lausnum, upplýsingum og skjölum sem það þarf í daglegu starfi.
- Umsjón með samningum, innkaupum og samskiptum við tæknibirgja og aðra samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði upplýsingatækni, tölvunarfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Víðtæk reynsla af upplýsingatækni og stafrænni þróun.
- Góð þekking á rekstri upplýsingakerfa og tæknilegra innviða, þar á meðal stýringu úthýstrar þjónustu.
- Þekking og reynsla af upplýsinga- og rekstraröryggi, persónuvernd, samninga- og birgjastjórnun og breytingastjórnun.
- Þekking á gagnamálum og greiningum og skilningur á tækifærum og ábyrgri hagnýtingu gervigreindar.
- Stefnumótandi hugsun og hæfni til að sjá tækifæri í nýrri tækni og stafrænum lausnum og samræma þarfir ólíkra starfseininga.
- Geta til að vinna jöfnum höndum að stefnumótun og hagnýtri útfærslu verkefna og fylgja þeim eftir til enda.
- Leiðtogahæfileikar, geta til að byggja upp öfluga liðsheild og leiða breytingar.
- Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
Um Hrafnistu
Hrafnista er stærsti rekstraraðili öldrunarþjónustu á landinu og rekur 7 hjúkrunarheimili í 5 sveitarfélögum. Hrafnista er dótturfélag Sjómannadagsráðs en félagið rekur sögu sína allt til ársins 1957 þegar Hrafnista Laugarási tók til starfa. Á Hrafnistu búa um 900 manns og um 1000 til viðbótar þiggja aðra þjónustu.
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið er unnið eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu á að skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin lýsir þannig þjónustunni, heimilisbragnum, menningunni og starfsumhverfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2026.
Sótt er um starfið á: https://www.vinnvinn.is/
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Auður Bjarnadóttir ([email protected]).
Íslenska
Enska










