Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

Framkvæmdastjóri

Hundaræktarfélag Íslands óskar eftir að ráða kraftmikinn og drífandi stjórnanda í starf framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri félagsins og vinnur náið með stjórn að áframhaldandi uppbyggingu og þróun félagsins.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með starfsemi skrifstofu félagsins, rekstri og fjármálum auk þess að leiða og fylgja eftir verkefnum, bæði innlendum og erlendum, í samræmi við stefnu og markmið félagsins.

Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði, sjálfstæði og góð samskipti skipta miklu máli. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á rekstri á skrifstofu félagsins og mannaforráð
  • Ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni
  • Ábyrgð á stjórnun og þátttaka í stefnumótun
  • Tryggja skilvirka þjónustu skrifstofu félagsins
  • Samskipti við erlenda og innlenda samstarfsaðila
  • Að auki sinnir framkvæmdarstjóri öðrum tilfallandi verkefnum í samráði við stjórn félagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Rekstrar og/eða stjórnunarreynsla
  • Hæfni til túlkunar regluverks og meðhöndlun formlegra erinda og kvartana
  • Einlægur áhugi á hundum væri mikill kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Víðtæk og góð tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

Um Hundaræktarfélag Íslands

Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ) er félag allra hundaeigenda á Íslandi sem hefur það að markmiði að stuðla að ábyrgri hundarækt, velferð hunda og góðu sambandi hunda og fólks. Félagið heldur utan um ættbækur hreinræktaðra hunda á Íslandi, styður við skipulagða ræktun og vinnur að því að viðhalda heilbrigði, skapgerð og tegundareinkennum hunda.

HRFÍ stendur einnig fyrir ýmsum viðburðum og sýningum. HRFÍ rekur skrifstofu sem er opin alla virka daga en skrifstofan er þjónustuaðili fyrir félagsmenn og hundaeigendur á Íslandi. Félagið er aðili að alþjóðasambandi hundaræktarfélaga (f. Fédération Cynologieque Internationale - FCI) og Norrænum samtökum hundaræktarfélaga (NKU).

Umsóknarfrestur er til og með 7. október en unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veita Vilborg Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur7. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Melabraut 17, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar