Hveragerðisbær
Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Yfirmaður í eldhúsi leikskólanna í Hveragerðisbæ

Leitað er eftir jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum leiðtoga sem hefur metnað fyrir faglegri starfsemi eldhúsanna.

Starfið felur í sér daglega verkstjórn og mannaforráð yfir starfsfólki eldhúss og því mikilvægt að viðkomandi hafi góða leiðtogahæfni, sé skipulagður og hafi hæfni til að skapa jákvætt og faglegt starfsumhverfi. Viðkomandi þarf að vera áreiðanlegur, lausnamiðaður og jákvæður í samskiptum, geta tekið ákvarðanir og leitt starfsfólk af virðingu, öryggi og trausti.

Helstu verkefni snúa að matseld, matseðlagerð og innkaupum fyrir eldhús auk annarra tilfallandi verkefna eldhúsanna. Starfsmaður er með mannaforráð og ber ábyrgð á rekstri, lager og búnaði eldhúss.

Undir mötuneyti leikskólanna falla tvær starfsstöðvar, Leikskólarnir Óskaland og Undraland Allur matur fyrir hádegisverð er framreiddur í eldhúsi leikskólans Undralands og fluttur á milli starfsstöðva. Fjöldi matarskammta er uþb. 350.

Hæfnikröfur:

  • Menntun í matartækni, matreiðslu eða sambærileg menntun

  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum er kostur

  • Skilningur á rekstri framreiðslueldhús og reynsla á vinnu fjárhagsáætlunargerðar

  • Þekking á matvælaöryggi, næringu og hreinlæti í framreiðslueldhúsi mikilvæg

  • Hæfni til að vinna í teymi og stuðla að góðum starfsanda.

  • Metnaður og áhugi á að þróa gott starf.

Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2026. Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Umsóknum ásamt ferilskrá, kynningarbréfi og upplýsingum um meðmælendur skal skilað rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri leikskólans Undralands ([email protected]) og Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri mennta-, menningar og lýðheilsusviðs. ([email protected])

Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Breiðamörk 20, 810 Hveragerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar