Mítra ehf.
Mítra ehf.

Lagerstjóri

Mítra leitar að öflugum lagerstjóra til að taka við umsjón daglegs reksturs og vera framkvæmdastjóra innan handar.

Um er að ræða fjölbreytt starf í litlu fyrirtæki þar sem allir ganga í öll verk. Starfið felur í sér stjórnunarstarf, verkstjórn ásamt þátttöku í daglegum verkefnum s.s. tiltekt á vörum, innkaup, vöruskrá og fleira.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri

  • Innkaup og birgðastýring – innkaupapantanir og samskipti við birgja 

  • Umsjón með vöruskrá – stofnun vara, verðlagning og skráning 

  • Stofnun og bókun innkaupapantana og reikninga 

  • Starfsmannahald – vinnuskipulag, verkstýring og utanumhald um tímaskráningu 

  • Almenn lagerstörf – móttaka, frágangur og dreifing vara 

  • Skipulag og umsjón vöruhúss 

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að manneskju sem: 

  • Er skipulögð og nákvæm og getur haldið mörgum boltum á lofti í einu 

  • Hefur reynslu af innkaupum, vörustýringu og/eða lagerstjórnun 

  • Hefur þekkingu á bókhalds- eða innkaupakerfum og góða almenna tölvufærni 

  • Er sjálfstæð, drífandi og lipur í mannlegum samskiptum 

  • Er óhrædd við að bretta upp ermar og ganga í öll störf  

  • Hefur góða íslensku- og enskukunnáttu

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, en reynsla og rétt hugarfar vega þyngra.

  • Bílpróf og lyftarapróf eru kostur (eða vilji til að taka lyftarapróf). 

Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tunguháls 15, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar