
JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.

Starfsmaður í vöruhús JYSK
Við leitum að kröftugum einstakling í lagerstörf í vöruhúsi okkar á Korputorgi.
Þarf að geta byrjað strax.
Við leitum af jákvæðu og öflugu starfsfólki til liðs við okkar frábæra teymi, viðkomandi þarf að vera röskur og samviskusamur með gleðina í fyrirrúmi. Við viljum bæta við okkur starfsfólki sem vinnur vel sjálfstætt, í hópi og þrífst vel í hröðu og lifandi umhverfi.
Um fullt starf er að ræða.
Unnið er 8-16 og 10:30-18:30 aðra hverja viku auk þess er unnin ein helgi í mánuði.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka vöru inn á vöruhús og frágangur
- Tínsla og afgreiðsla á pöntunum til viðskiptavina
- Skipulag á vöruhúsi
- Almenn lagerstörf
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lyftararéttindi
- Reynsla af starfi í vöruhúsi
- Stundvísi og sveigjanleiki
- Heiðarleiki og ábyrgð í starfi
- Góð mannleg samskipti
- Geta til að vinna í hópi
- Dugnaður og hreysti
- Enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniLagerstörfLíkamlegt hreystiSamviskusemiSkipulagStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í byggingu Nýju Ölfusárbrúarinnar?
ÞG Verk

Parlogis - Framtíðarstarf í vöruhúsi - Lyfjamerking
Parlogis

Starfsmaður á þjónustuver og í verlsun óskast
AB Varahlutir

Lagerstarfsmaður
Hirzlan

Lagerstjóri
Mítra ehf.

Lagerstarfsmaður óskast hjá John Lindsay
John Lindsay hf.

Vörutiltekt í vefverslun
ELKO

Við leitum að nýju fólki í hópinn!
Ó.Johnson & Kaaber

Fullt starf í Ríteil
Ríteil

Lagerstjóri
Öryggismiðstöðin

Starfsmaður í tiltekt á vörum
Álfasaga ehf

Innkaupafulltrúi
STOÐ