
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Innkaupafulltrúi
STOÐ leitar að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi innan nýrrar STOÐ-einingar.
Starfið er fjölbreytt þar sem megináhersla er lögð á samskipti við birgja, utanumhald innkaupa og að tryggja rétta skráningu og afgreiðslu vara. Innkaupafulltrúi vinnur náið með viðskiptastjórum, starfsfólki vöruhúss og öðrum hagaðilum til að tryggja nákvæma skráningu og skilvirka afgreiðslu innkaupa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með innkaupum og vörustýringu
- Vinna náið með hagaðilum til að tryggja að innkaup styðji við þarfir viðskiptavina
- Ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini
- Vöktun á birgðastöðu og veltuhraða
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja
- Tollskýrslugerð og samskipti við tollayfirvöld og flutningsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af innkaupum, tollskýrslugerð og vörustýringu
- Reynsla af notkun BC og AGR eða sambærilegum kerfum er kostur
- Reynsla í bókhaldi er kostur
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Greiningarhæfni, nákvæmni og samviskusemi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AGR DynamicsBirgðahaldGreiningarfærniMannleg samskiptiMicrosoft Dynamics 365 Business CentralSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í tiltekt á vörum
Álfasaga ehf

Starfsmaður í vörustjórnun
Bera hf.

Business Central ráðgjafi
Wise lausnir ehf.

Senior Procurement Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Starf á lager
Fastus

Bílstjórar - FULLT STARF
Póstdreifing ehf.

Starf í framleiðsludeild
Lýsi

Skrifstofustarf á Akureyri
Frost

Starfsmaður í vöruhúsi í Garðabæ - tímabundin staða
DHL Express Iceland ehf

Innkaupafulltrúi á vörulager og varahlutasvið
Vélanaust

Starfsmaður í lestun
Samskip

Innkaupasérfræðingur í aðfangakeðju / Supply Chain Purchasing Specialist
NEWREST ICELAND ehf.