STOÐ
STOÐ
STOÐ

Deildarstjóri innkaupa og birgðastýringar

Viltu móta nýja starfseiningu sem tryggir rétt vöruflæði, hagkvæm innkaup og öruggt vöruframboð?

STOÐ leitar að öflugum og lausnamiðuðum stjórnanda með mannaforráð til að leiða nýja deild sem ber ábyrgð á innkaupum, aðfangastjórnun og vöruhúsi.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka rekstrarhugsun, góða greiningarhæfni og ánægju af því að vinna bæði með fólki, ferla og tölur. Við leitum að leiðtoga sem getur byggt upp skýra verkferla, þróað teymi, unnið náið með birgjum og innri hagaðilum og stuðlað að betri nýtingu birgða og skilvirkari rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og byggja upp nýja STOÐ-einingu með ábyrgð á innkaupum, vöruhúsi og aðfangastjórnun
  • Ábyrgð á innkaupaferlum, birgðastýringu, endurpöntunum, móttöku, vörumeðhöndlun, geymslu og afhendingu
  • Taka þátt í samningaviðræðum, birgjavali, kostnaðareftirliti og umbótum í innkaupum
  • Greina gögn og setja fram reglubundna yfirsýn yfir stöðu birgða, vöruflæði, framboð, kostnað og lykilmælikvarða
  • Vinna náið með viðskiptastjórum til að tryggja að innkaup, birgðastýring og vöruhús styðji við sölu, þjónustu og þarfir viðskiptavina
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)