
Bera hf.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.
Nafnið Bera hefur sterka sögulega tengingu við uppruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og endurspeglar rætur, styrk og metnað samstæðunnar til framtíðar.
Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu:
• Ölgerðin er leiðandi fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði á Íslandi.
• Danól – sérhæfir sig í innflutningi og markaðssetningu vörumerkja.
• Gæðabakstur – framleiðir og dreifir ferskum og gæðamiðuðum bakarísvörum.
• Kjarnavörur – framleiðir og dreifir fjölbreyttum mat- og neysluvörum.
Hlutverk Beru er að styðja við verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt innan samstæðunnar. Félagið mótar heildarstefnu, tryggir skilvirka stoðþjónustu og skapar tækifæri til frekari þróunar og nýsköpunar.
Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs. Með því nýtist stærðarhagkvæmni betur og rekstrarfélögin geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og þjónustu við viðskiptavini.
Bera leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, sjálfbærni og langtímahugsun í öllum sínum verkefnum. Markmið félagsins er að byggja upp öfluga og samkeppnishæfa samstæðu sem skapar verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið í heild.
Starfsmaður í vörustjórnun
Við leitum að starfsmanni á vörustjórnunarsvið Beru hf. til að sjá um tollafgreiðslur og birgðareftirlit.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Dótturfélög Beru eru m.a. Ölgerðin og Danól.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tollafgreiðsla
- Ráðgjöf í tollamálum
- Eftirfylgni með sendingum
- Regluleg samskipti við ytri og innri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, próf frá viðskiptaskólum eða diploma í tollmiðlun
- Reynsla af tollafgreiðslu er mikill kostur
- Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vörustýringu eða sambærilegu starfi er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót, góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur11. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


