

Lagerstarfsmaður óskast hjá John Lindsay
John Lindsay óskar eftir öflugum og áreiðanlegum einstaklingi til starfa á lager fyrirtækisins.
Um er að ræða 100% starf í dagvinnu, alla virka daga frá kl. 8:00–16:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
- Almenn lagerstörf
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Vörumóttaka og frágangur á vörum
- Móttaka og losun gáma
- Skipulag og almenn umhirða á lager
- Önnur tilfallandi verkefni
Starfið felur í sér reglulegan burð og meðhöndlun á kössum og vörum og því er mikilvægt að umsækjandi sé í góðu líkamlegu formi og geti sinnt líkamlega krefjandi verkefnum.
Um John Lindsay
John Lindsay er rótgróið íslenskt heildsölufyrirtæki sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Fyrirtækið flytur inn, framleiðir og dreifir fjölbreyttu úrvali neyslu-, mat-, hreinlætis-, heimilis- og byggingarvara og þjónustar viðskiptavini um allt land.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að verða hluti af góðum vinnustað og öflugum hópi starfsmanna þar sem lögð er áhersla á góða þjónustu, fagleg vinnubrögð og gott samstarf. Nánari upplýsingar um fyrirtækið og vörumerki á heimasíðu Lindsay
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð.
- 20 ára eða eldri
- Lyftarapróf/vinnuvélaréttindi er kostur
- Bílpróf
- Reynsla af lagerstörfum er kostur
- Íslenskukunnátta er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta er kostur
- Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
- Þjónustulund
- Hreint sakavottorð
Enska
Íslenska










