Arnarlax ehf
Arnarlax ehf
Arnarlax ehf

Ert þú leiðtoginn sem við leitum að?

*English below

Arnarlax leitar að öflugum og ábyrgum svæðisstjóra til að leiða daglegan rekstur sjódeildarsvæðis fyrirtækisins á sunnanverðum Vestfjörðum.

Svæðisstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri stöðvarinnar, starfsfólki, skipulagningu verkefna, öryggi, velferð fisks og rekstrarlegum árangri. Hann leiðir teymi fiskeldismanna, skipuleggur og fylgir eftir verkefnum og tryggir að starfsemin sé í samræmi við verklagsreglur og kröfur Arnarlax.

Starfið er bæði stjórnunar- og vettvangsstarf og við leitum því að einstaklingi sem hefur gaman af því að leiða fólk, taka ábyrgð og vera virkur þátttakandi í daglegum rekstri á sjó.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og skipulagning á starfsemi sjódeildarsvæðisins
  • Leiða, styðja og fylgja eftir starfsfólki svæðisins
  • Tryggja að starfsemi svæðisins sé í samræmi við verklagsreglur, öryggiskröfur og staðla Arnarlax
  • Fylgjast með velferð fisks og líffræðilegum árangri svæðisins
  • Skipuleggja og fylgja eftir verkefnum, mannafla og búnaði
  • Fylgjast með rekstri og kostnaðaráætlunum svæðisins
  • Tryggja réttar skráningar, eftirfylgni og upplýsingagjöf
  • Vera í nánu samstarfi við aðra svæðisstjóra og stoðdeildir Arnarlax
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Öflug leiðtogahæfni og hæfni til að leiða og hvetja teymi
  • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi
  • Góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni til að taka ákvarðanir og bregðast við breytilegum aðstæðum
  • Góður skilningur á rekstri og áhugi á fiskeldi
  • Vilji til að taka virkan þátt í daglegum verkefnum svæðisins, bæði á sjó og landi
  • Góð almenn tölvukunnátta

Reynsla úr fiskeldi, sjávarútvegi eða sambærilegum rekstri er kostur.

    Fríðindi í starfi
    • Samkeppnishæf laun
    • Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi
    • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
    • Öflugt starfsumhverfi og gott samstarf
    • Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
    Auglýsing birt4. september 2026
    Umsóknarfrestur20. september 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Valkvætt
    Meðalhæfni
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Meðalhæfni
    Staðsetning
    Strandgata 1, 465 Bíldudalur
    Starfstegund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar