

Svæðisstjórar
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum stjórnendum til að leiða verkefni Þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar borgarhlutum vestur og austur.
Skrifstofa borgarlandsins ber ábyrgð á rekstri, umhirðu og þróun borgarlandsins. Starfsemin snýr meðal annars að viðhaldi og umsjón opinna svæða, grænna svæða, leiksvæða, gatnaumhverfis og annarra sameiginlegra eigna borgarinnar. Skrifstofan sér einnig um framkvæmd fjölbreyttra verkefna sem stuðla að snyrtilegu, öruggu og aðlaðandi borgarumhverfi, auk þátttöku í viðburðum og samstarfsverkefnum.
Svæðisstjórar bera ábyrgð á daglegum rekstri hverfastöðva borgarinnar. Meginhlutverk þeirra er að hafa yfirumsjón með verkefnum hverfastöðva og tryggja að borgarlandið sé hreint, öruggt og í góðu ástandi. Starfið felur í sér forgangsröðun verkefna, verkstýringu starfsfólks í samráði við rekstrarstjóra og markvissa eftirfylgni með framkvæmd og framvindu verkefna.
Svæðisstjórar gæta hagsmuna borgarinnar á borgarlandi og tryggja örugga, skilvirka og faglega þjónustu. Um er að ræða viðbragðsmiðað starf þar sem oft þarf að bregðast hratt við ófyrirséðum aðstæðum, sýna frumkvæði, sveigjanleika og þjónustulund.
- Forgangsröðun verkefna og skipulag vinnu í samráði við skrifstofustjóra.
- Úthlutun verkefna og ábyrgðar til rekstrarstjóra og starfsfólks hverfastöðva.
- Samráð og samstarf við hagaðila innan borgarhlutanna.
- Miðlun upplýsinga til starfsfólks og samstarfsaðila og þátttaka í samstarfsverkefnum á starfssviðinu.
- Ábyrgð á fjárhagsramma hverfastöðva og eftirlit með að rekstur sé innan samþykktra fjárheimilda.
- Ráðning, móttaka og þátttaka í þjálfun starfsfólks.
- Leiðsögn, stuðningur og reglubundin endurgjöf til starfsfólks.
- Kostnaðargát og eftirlit með að reikningar og útgjöld séu í réttum farvegi.
- Eftirlit með öryggis- og vinnuverndarmálum á ábyrgðarsvæði.
- Hagnýt menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun eða sambærileg menntun.
- Framhaldsnám á sviði iðngreina, reksturs eða stjórnunar er kostur.
- Reynsla af stjórnun og verkefnastjórnun.
- Reynsla af ráðningum og mannaforráðum.
- Reynsla af rekstri, fjármálastjórnun og verklegum framkvæmdum er kostur.
- Góð hæfni í samskiptum og samstarfi.
- Frumkvæði, verkvit, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
- Góð skipulagsfærni og geta til að vinna undir álagi.
- Íslenskukunnátta B2-C1 í samræmi við samevrópska tungumálarammann
- Enskukunnátta B2 í samræmi við samevrópska tungumálarammann
Íslenska
Enska










