

Vaktavinna í viðhaldsteymi
Við leitum að iðnmenntuðum og/eða handlögnum einstaklingi í framtíðarstarf í viðhaldsdeild félagsins. Alla jafna er unnið á dag- og næturvöktum þannig að það eru tvær til þrjár næturvaktir aðra hverja viku og dagvaktir á móti. Starfstöðin er á Laxabraut í Þorlákshöfn.
Um er að ræða frábært tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefni þar sem verkefnin eru bæði fjölbreytt og áhugaverð. Mikil tækifæri til að þróast í starfi og bæta við sig þekkingu.
First Water leggur áherslu á faglega viðhaldsstjórnun og kemur viðkomandi til með að fá tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu á viðhaldsstjórnunarkerfi.
Í fiskeldisstöð félagsins er margvíslegur véla- og tæknibúnaður sem krefst viðhalds og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennt viðhald á búnaði stöðvarinnar, þ.m.t. dælubúnaði, hreinsibúnaði, fóðurbúnaði og eldiskerfum
- Rekstur á krapakerfi, fiskflutningsbúnaði og sláturkerfum
Menntunar og hæfniskröfur
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.d. vélvirkjun/bifvélavirkjun eða reynsla af viðgerðum
- Reynsla af rekstri og viðhaldi á búnaði fyrir fiskvinnslur og/eða matvælavinnslur kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi og umbótahugsun
Nánari upplýsingar veitir Árni Viggó Sigurjónsson, viðhaldsstjóri, [email protected]
Umsóknafrestur er til og með 13.september. Byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast
First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.











