
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf) er umboðs- og dreifingaraðili fyrir vörumerkin Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat, Fiat Professional, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á íslandi. Hjá ÍSBAND eru nú um 40 stöðugildi. Söludeild er staðsett í Þverholti 6 í Mosfellsbæ.
ÍSBAND bílaverkstæði sinnir ofantöldum vörumerkjum sem og 33"-40" breytingum á Jeep og RAM. Varahlutaverslunin flytur inn varahluti frá ofangreindum vörumerkum, öðrum USA merkjum og aukahluti. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip. Verkstæði og varahlutaverslun eru í rúmgóðu húsnæði að Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík þar sem góð aðstaða er til að taka á móti stórum pallbílum og húsbílum.

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND leitar að bifvélavirkja til liðs við verkstæðið okkar að Smiðshöfða 5 í Reykjavík.
Við erum umboð fyrir Leapmotor, Jeep®, RAM, Fiat, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á Íslandi og leitum að öflugum bifvélavirkjum til liðs við okkur.
Verkstæðið okkar sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, þar á meðal:
- Umboðsþjónustu og viðgerðum fyrir Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge
- Almennum bifreiðaviðgerðum
Við erum í stöðugum vexti og bjóðum spennandi starfsumhverfi í nánu samstarfi við alþjóðleg vörumerki.
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar bílaviðgerðir
- Bilanagreiningar
- Almennt viðhald
- Þjónustuskoðanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun (eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum)
- Reynsla af greiningu og viðgerðum á bílum skilyrði
- Góð samskiptahæfni og færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Grunnþekking á tölvum og tækjabúnaði æskileg
- Ökuréttindi eru skilyrði
- C1 ökuréttindi (pallbílapróf) er kostur
Auglýsing birt25. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðshöfði 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BilanagreiningBílarafmagnsviðgerðirBílvélaviðgerðirBremsuviðgerðirPústviðgerðirSmurþjónusta
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

WE ARE HIRING – EXPERIENCED CAR MECHANIC
RT Bílar ehf.

Bifvélavirki / reyndur bílaáhugamaður óskast einn dag í viku
Bílasafn

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.

Okkur vantar starfsmann strax í dekkjatörnina. Starfið er tímabundið.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Tæknimaður á upplýsingatæknisvið
VHE

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Lagerstarfsmaður
Hirzlan

Verkstæðismóttaka og varahlutir
IB ehf