
Bílabúð Benna
Bílabúð Benna er þjónustufyrirtæki bílaáhugamannsins. Fyrirtækið var stofnað árið 1975 flytur inn og selur vara- og fylgihluti í allar tegundir bifreiða.
Bílabúð Benna er umboðsaðili bílaframleiðendanna Porsche og KGM auk þess að bjóða uppá úrval auka og varahluta auk þjónustu við bílamerkin Chevrolet, Opel, SsangYong og Daewoo.
Bílabúð Benna er systurfyrirtæki bílaleigunnar Sixt og Nesdekk. Fyrirtækið er starfrækt í Reykjavík en er með umboðssölu bíla á Akureyri, Selfossi og Akureyri ásamt þjónustusamning við verkstæði um allt land.
Sérfræðingur á þjónustu og varahlutasviði
Bílabúð Benna leitar að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt starf þar sem hraði, nákvæmni og góð samskipti skipta miklu máli.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd varahlutum, verkstæði, tjónum og þjónustu við viðskiptavini. Viðkomandi verður mikilvægur hlekkur á milli verkstæðis, varahlutaverslunar, birgja og viðskiptavina og fær tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkefnum innan rekstrarins.
Helstu verkefni
- Umsjón með afgreiðslu varahluta fyrir verkstæði, þar með talið aðkeyptum vörum.
- Gera tilboð í tjón fyrir réttingaverkstæði og stærri viðskiptavini.
- Styðja við verkstæðismóttöku Porsche og KGM.
- Samskipti við framleiðendur.
Við leitum að þér sem
- Ert skipulagður, nákvæm/ur og lausnamiðað/ur.
- Átt auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu.
- Hefur ríka þjónustulund og hefur gaman af samskiptum við fólk.
- Ert sjálfstæður í vinnubrögðum en jafnframt góður liðsfélagi.
- Hefur áhuga á bílum, varahlutum og verkstæðisrekstri.
- Hefur góða tölvu- og samskiptahæfni á íslensku og ensku.
- Hefur metnað til að læra og takast á við fjölbreytt verkefni.
Reynsla af varahlutum, verkstæðisstarfi, tjónamálum eða bílgreininni er kostur en ekki skilyrði. Mikilvægast er að þú sért jákvæð/ur, úrræðagóð/ur og tilbúinn að taka þátt í öflugu teymi.
Hjá Bílabúð Benna færð þú
- Fjölbreytt og krefjandi starf í spennandi umhverfi.
- Tækifæri til að vinna með þekktum bílamerkjum og fjölbreyttum verkefnum.
- Gott tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
- Öflugan hóp samstarfsfólks og gott starfsumhverfi.
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Krókháls 9, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vaktavinna í viðhaldsteymi
First Water

Ræstingar / Cleaning
Skógasafn

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki eða starfsfólk með reynslu
MAX1 | VÉLALAND

Öryggisvörður
Max Security

Icewear Þingvöllum óskar eftir
ICEWEAR

Fiska óskar eftir öflugri manneskju
Fiska.is Asian supermarket

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Óskum eftir Bifvélavirkja i fullt starf
Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

Höfuðborgarsvæðið - tímavinna um helgar
Vínbúðin