

Sviðsstjóri eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
Vilt þú leiða öflugan hóp sem skilar mælanlegum árangri og samfélagslegum framförum?
Umhverfis- og orkustofnun leitar að framsýnum og umbótasinnuðum stjórnanda til að leiða eftirlitssvið stofnunarinnar. Sviðsstjóri á sæti í framkvæmdastjórn og gegnir lykilhlutverki í að þróa og efla opinbert eftirlit með áherslu á fagmennsku, árangur og samfélagslegan ávinning.
Leitað er að öflugum leiðtoga sem hefur góðan skilning á hlutverki stofnunarinnar, sýnir frumkvæði og hefur náð mælanlegum árangri í fyrri störfum. Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með að byggja upp traust og árangursríkt samstarf við hagaðila og stuðli að faglegum og uppbyggilegum samskiptum um framkvæmd eftirlits.
Sviðsstjóri ber ábyrgð á starfsemi og forgangsröðun verkefna eftirlitssviðs og tryggir að ákvarðanir byggist á áhættumati, traustum upplýsingum og samræmdum vinnubrögðum.
Starfið er spennandi tækifæri fyrir leiðtoga sem ber umhyggju fyrir fólki og vill leiða öflugan hóp sérfræðinga og skapa umhverfi þar sem þekking, samstarf og umbótahugsun fá að njóta sín.
Sviðsstjóri vinnur náið með forstjóra, stjórnendum og sérfræðingum stofnunarinnar. Þá felur starfið í sér víðtækt samstarf við atvinnulífið, sveitarfélög, ráðuneyti, aðrar opinberar stofnanir og hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun í samræmi við umboðsreglur ásamt ábyrgð á starfsfólki, starfsþróun og árangri.
- Mótun stefnu, markmiða, starfsáætlana og forgangsröðunar verkefna.
- Þróun og innleiðing samræmds, áhættumiðaðs og gagnamiðaðs eftirlits.
- Skilgreining árangursmælikvarða, viðmiða og reglubundinnar upplýsingagjafar um stöðu verkefna og árangur eftirlits.
- Tryggja vandaða, samræmda og gagnsæja stjórnsýslu.
- Tryggja markvissa eftirfylgni með frávikum, ákvörðunum, fyrirmælum og kröfum um úrbætur.
- Forysta um umbætur á ferlum, gæðastjórnun, stafræna þróun og bætta nýtingu gagna og upplýsingakerfa.
- Ráðgjöf til forstjóra og stjórnenda um eftirlitsmál, áhættu, forgangsröðun og viðbrögð.
- Samstarf og skýr samskipti við eftirlitsskylda aðila, stjórnvöld, fagaðila og aðra hagaðila.
- Þátttaka í sameiginlegri stefnumótun og þróun Umhverfis- og orkustofnunar.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Farsæl reynsla af stjórnun, stefnumótun, breytingastjórnun og innleiðingu umbóta.
- Leiðtogahæfni og færni í að skapa liðsheild og leiða fólk til árangurs.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Reynsla af mótun árangursmælikvarða, mælaborða eða annarri kerfisbundinni upplýsingagjöf.
- Reynsla af því að umbreyta niðurstöðum greininga í skýra forgangsröðun, ákvarðanir og framkvæmanlegar aðgerðir
- Öguð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að miðla flóknum upplýsingum með skýrum og aðgengilegum hætti.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur.
Umhverfis- og orkustofnun tók til starfa 1. janúar 2025 og starfar samkvæmt lögum nr. 110/2024. Stofnunin fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála auk málefna auðlindanýtingar. Verkefni hennar ná meðal annars til eftirlits, efnamála, hafs og vatns, hringrásarhagkerfis, loftgæða, loftslagsmála, losunarheimilda, orkuskipta og orkunýtni.
Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga að verkefnum sem hafa víðtæk áhrif á umhverfi, samfélag og atvinnulíf. Stofnunin leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu, þjónustu, nýsköpun og sýnilegan árangur. Umhverfis- og orkustofnun er umhverfisvænn og fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlegt og heilsueflandi vinnuumhverfi.
Í boði er krefjandi og skemmtilegt stjórnunarstarf hjá stofnun í þróun og einstakt tækifæri til að móta framtíð opinbers eftirlits á mikilvægum málefnasviðum. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru um allt land. Staðsetning á starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins er kostur.
Íslenska










