Framkvæmdastjóri - Landssamtök íslenskra stúdenta
Framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í spennandi verkefnum. LÍS eru regnhlífarsamtök stúdentafélaga á Íslandi og sinna hagsmunagæslu fyrir háskólanema á Íslandi sem og íslenska háskólanema í námi erlendis.
Framkvæmdastjóri og forseti LÍS vinna saman að markmiðum samtakanna og bera ábyrgð á starfsemi þeirra.
Stefnt er að því að framkvæmdastjóri hefji störf í haust og verði ráðinn í 80% starf til og með 1. október 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fjármálum samtakanna
- Gerð fjárhagsáætlunar og ársreiknings
- Umsjón með vefsíðu samtakanna
- Hefur samningsumboð fyrir hönd samtakanna og sækir um styrki
- Heldur utan um framkvæmd viðburða, svo sem árlegt Landsþing samtakanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af fjármálum og bókhaldi er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð samskiptahæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi og þekking á hagsmunabaráttu stúdenta er æskileg
- Reynsla af starfsemi félagssamtaka, stéttarfélaga eða hagsmunasamtaka er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
- Önnur þekking og reynsla sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Heimavinna möguleg
LÍS eru regnhlífarsamtök háskólanema á Íslandi sem og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. Innan samtakanna eru 8 aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis. LÍS eru því í forsvari fyrir yfir 20 þúsund stúdenta og standa vörð um hagsmuni þeirra hérlendis sem og erlendis.

Íslenska
Enska