Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Rekstrarstjóri fjármálasviðs

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan rekstrarstjóra til starfa á fjármálasviði stofnunarinnar.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með áherslu á áætlanagerð, rekstrareftirlit, greiningar og stjórnendaupplýsingar. Rekstrarstjóri vinnur náið með framkvæmdastjóra fjármála og stjórnendum stofnunarinnar að því að efla fjárhagslega stjórnun og styðja við markvissa og upplýsta ákvarðanatöku.

Fjármálasvið HSU er á spennandi þróunarvegferð þar sem lögð er áhersla á aukna nýtingu gagna, gervigreindar, sjálfvirkni og hugbúnaðarþjarka. Rekstrarstjóri mun taka virkan þátt í þeirri þróun með það að markmiði að einfalda verkferla, bæta upplýsingar og skapa aukið svigrúm til greininga og verðmætaskapandi verkefna.

Rekstrarstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiða og samræma gerð fjárhagsáætlunar.

Annast mánaðarlegt rekstrareftirlit og greiningu frávika í samstarfi við stjórnendur.

Útbúa stjórnendaupplýsingar, rekstrarskýrslur, lykilmælikvarða og sviðsmyndir til stuðnings ákvarðanatöku.

Greina þróun launa, mönnunar, innkaupa, tekna og kostnaðar.

Styðja stjórnendur við áætlanagerð og mótun aðgerða vegna frávika.

Þróa stjórnendaupplýsingar og mælaborð og stuðla að gæðum og rekjanleika gagna.

Greina og þróa tækifæri til að nýta gervigreind, sjálfvirkni og hugbúnaðarþjarka við gagnavinnslu, greiningar, skýrslugerð og endurtekin verkefni.

Stuðla að góðri yfirsýn yfir samninga sem hafa fjárhagsleg áhrif og benda á frávik eða þörf fyrir endurnýjun og endurskoðun.

Vinna kostnaðar- og rekstrargreiningar vegna breytinga, nýrra verkefna og stærri ákvarðana.

Taka þátt í þróun og umbótum á verkferlum fjármálasviðs.

Önnur verkefni samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjóra fjármála.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun í fjármálum, hagfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

Reynsla af áætlanagerð, rekstrareftirliti og fjárhags- eða rekstrargreiningum.

Mjög góð greiningarhæfni og talnaskilningur.

Mjög góð kunnátta í Excel og hæfni til að vinna með umfangsmikil gögn.

Góð stafræn hæfni og áhugi á að tileinka sér nýja tækni, svo sem gervigreind, sjálfvirkni og greiningarlausnir.

Þekking á opinberum fjármálum, samningum og opinberum rekstri er kostur.

Hæfni til að setja fram flóknar upplýsingar á skýran og aðgengilegan hátt.

Sjálfstæði, frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.

Góð samskipta- og samstarfshæfni og lausnamiðað viðhorf.

Við leitum að einstaklingi sem

Hefur áhuga á að byggja upp öfluga og framsækna rekstrarstjórnun á HSU.

Sér samhengi á milli fjármála, mönnunar, þjónustu og rekstrar.

Getur greint aðalatriði upplýsinga og sett fram skýrar niðurstöður og tillögur.

Er forvitinn um nýja tækni og sér tækifæri til að nýta hana til umbóta.

Er óhræddur við að spyrja gagnrýninna spurninga og fylgja málum eftir.

Leggur áherslu á fagmennsku, góða þjónustu og traust samstarf.

Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar