

Sérfræðingur í launavinnslu
Vilt þú bera ábyrgð á launavinnslu hjá orkufyrirtæki þjóðarinnar?
Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur góða reynslu af launavinnslu og metnað fyrir því að tryggja nákvæmni, gæði og skilvirkni. Starfið heyrir undir deild Mannauðs og menningar, teymi sérfræðinga sem vinna saman að því að skapa framúrskarandi starfsumhverfi og veita stjórnendum og starfsfólki faglega og trausta þjónustu. Í starfinu gefst tækifæri til að hafa áhrif á þróun launa- og mannauðsferla, stuðla að stöðugum umbótum og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem styðja við þróun og árangur Landsvirkjunar.
Helstu verkefni:
- ábyrgð á launavinnslu, þar með töldum undirbúningi og framkvæmd útborgana, afstemmingum, launatengdum skilum og bókun launa í fjárhagskerfi
- umsjón með launakerfi og tengingu þess við fjárhagskerfi
- ábyrgð á að launavinnsla sé í samræmi við lög og reglur, kjarasamninga og innri verklagsreglur
- ráðgjöf og upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks um launa- og kjaramál, auk starfsmannatengdra mála er snúa að réttindum starfsfólks, s.s. veikindarétti og starfslokum
- samskipti við sjóði, félög og aðra ytri aðila
- skýrslugerð, greiningar og úrvinnsla gagna á sviði launa- og kjaramála
- þátttaka í umbótaverkefnum með áherslu á einföldun, sjálfvirknivæðingu og þróun launa- og mannauðsferla ásamt ýmsum öðrum verkefnum tengdum launa- og kjaramálum.
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur reynslu af launavinnslu og góða þekkingu á launa- og kjaramálum
- hefur þekkingu og reynslu af launa- og mannauðskerfinu Kjarna (mikill kostur)
- hefur góða greiningarhæfni
- býr yfir frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuðu hugarfari
- hefur þekkingu og áhuga á að nýta tækni og stafrænar lausnir til að þróa vinnulag og ferla
- hefur góða samskiptahæfni og þjónustulund
- hefur menntun sem nýtist í starfi
- hefur góða íslenskukunnáttu
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun leggur ríka áherslu á fagmennsku, frumkvæði, öryggi, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum í orkugeiranum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum starfsfólk með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem traust, jafnrétti og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu.
Íslenska










