Nova
Nova
Nova

Séní í stafrænum vexti og vef

Vilt þú taka þátt í að stækka dansgólfið á stærsta skemmtistað í heimi?

Séní í stafrænum vexti og vef vinnur á mörkum markaðsmála, vöruþróunar, tækni og gagna og gegnir lykilhlutverki í því að móta ferðalag núverandi og framtíðar viðskiptavini Nova á stafrænum miðlum.

Hlutverkið ber ábyrgð á stafrænni vaxtarvél og markaðstrekt Nova, þ.e.a.s. Nova.is, stafrænum markaðsaðgerðum, mælingum, og tracking. Viðkomandi vinnur þvert á ferðalag viðskiptavinarins, frá fyrstu birtingu eða leit yfir á nova.is, lendingarsíður, HubSpot og áfram yfir í sölutækifæri.

Viðkomandi er eigandi Nova.is og þar með helsti kröfuhafi fyrir umbætur á vefnum. Hlutverkið ber ábyrgð á rekstri og stöðugri umbót á ytri vef Nova, og tryggir þar af leiðandi að efni, framsetning og upplifun sé til fyrirmyndar á vefnum.

Séníið ber ábyrgð á framkvæmd og bestun stafrænnar markaðssetningar Nova. Þar undir falla meðal annars SEO, AEO, SEM, PPC, keyptar birtingar á samfélagsmiðlum (e. paid social), affiliate markaðssetning, ásamt stafrænni markaðstrekt inni í Hubspot.

Helstu verkefni og ábyrgð

Eignarhald og rekstur Nova.is

  • Eignarhald á Nova.is og ábyrgð á að vefurinn styðji þarfir viðskiptavina og markmið Nova.
  • Eiga umbótaverkefni vefsins, forgangsraða þeim með vörustjóra Inspire út frá virði og fylgja umbótum eftir frá hugmynd að útgáfu
  • Eiga daglegan efnisrekstur Nova.is og uppfæra texta og myndefni í Sanity, Contentful eða sambærilegu vefumsjónarkerfi.
  • Setja upp og viðhalda lendingarsíðum með skýran tilgang, CTA og tengingu við kaupferli
  • Tryggja gæði, samræmi, aðgengi og réttleika upplýsinga og framsetningar á vefnum.

Vöxtur og stafræn markaðssetning

  • Tengja saman og tryggja að Nova.is, Hubspot, stafrænar birtingar, og lendingarsíður myndi eina mælanlega heild frá fyrstu snertingu yfir í sölutækifæri.
  • Eiga og framkvæma aðgerðir til að besta lífrænan sýnileika Nova á stafrænum miðlum líkt og leitarvélum (SEO) og gervigreindarlíkönum (AEO)
  • Eiga og framkvæma bestun kostaðra stafrænna herferða á leitarvélum (SEM), samfélagsmiðlum (paid social) og samstarfaðilum (affiliate marketing).
  • Tryggja rétta uppsetningu mælinga (tracking) fyrir Nova.is, stafrænar herferðir, lendingarsíður o.þ.h..
  • Greina hegðun og árangur í Google Analytics og HubSpot og miðla skýrri innsýn til teymis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stafrænum vexti (e. growth marketing) eða árangursdrifinni stafrænni markaðssetningu (e. performance marketing)
  • Reynsla af HubSpot/Salesforce eða öðru sambærilegu CRM sölu- og markaðskerfi
  • Reynsla af rekstri og þróun vefsíðna og vefumsjónarkerfum, svo sem Contentful, Sanity, Prismic, Umbraco eða sambærilegum lausnum.
  • Góð þekking á SEO, leitarhegðun, efnisbestun og tæknilegum þáttum sýnileika.
  • Reynsla af Google Analytics, Segment, PostHog eða sambærilegum greiningarverkfærum.

Bráðnauðsynlegir eiginleikar hjá öllum dönsurum Nova

  • Setja egóið til hliðar: Engin gera neitt ein!
  • Alltaf hungruð, aldrei södd!
  • Samskiptaklár!
  • Ég stuðla að því að teymið mitt sé heilbrigt og framúrskarandi gott.
Auglýsing birt20. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AdWordsPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AdsPathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Google Data StudioPathCreated with Sketch.HubSpotPathCreated with Sketch.Leitarvélabestun (SEO)PathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.Vefumsjón
Starfsgreinar
Starfsmerkingar