Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar

SSNV leitar að öflugum, framsýnum og markaðsþenkjandi verkefnisstjóra til að styðja við framþróun í atvinnu-, fjárfestinga- og markaðsmálum landshlutasamtakanna.

Um er að ræða fjölbreytt starf sem tengist atvinnustarfsemi landshlutans, fjárfestingum og markaðssetningu á þeim fjölbreyttu tækifærum sem Norðurland vestra býður upp á.

Verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar leiðir fjárfestingaverkefni landshlutans og sækir fram þar sem tækifæri gefast til að kynna fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra og efla atvinnulíf landshlutans. Þá ber hann ábyrgð á markaðsmálum samtakanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kortleggja, þróa og vinna markvisst að framgangi fjárfestingatækifæra á Norðurlandi vestra og kynna þau fyrir innlendum og erlendum fjárfestum.

Leiða og fylgja eftir fjárfestingaverkefnum í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki, fjárfesta og aðra hagaðila.

Veita frumkvöðlum og fyrirtækjum atvinnuráðgjöf, einkum varðandi stofnun fyrirtækja, rekstur, viðskiptaáætlanir, fjármögnun og þróun viðskiptahugmynda.

Stuðla að uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra, m.a. með því að greina tækifæri til nýrrar atvinnustarfsemi og styðja við þróun þeirra.

Annast markaðsmál SSNV og taka þátt í að þróa og innleiða markaðs- og samskiptastarf samtakanna.

Kynna Norðurland vestra sem ákjósanlegan stað fyrir fjárfestingar, atvinnurekstur og uppbyggingu, í samstarfi við sveitarfélög og aðra hagaðila.

Þátttaka í öðrum verkefnum SSNV á sviði atvinnu- og byggðaþróunar eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf sem nýtist í starfi.

Reynsla af þeim málaflokkum er undir starfið heyra.

Þekking og reynsla af markaðssetningu er kostur.

Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga er kostur.

Framúrskarandi samskiptafærni og tölvukunnátta.

Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni.

Framsýni og metnaður.

Góð rit- og talfærni á íslensku og ensku og hæfni í framsetningu upplýsinga á aðgengilegan hátt.

Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skagaströnd
Árbraut 31, 540 Blönduós
Höfðabraut 6, 530 Hvammstangi
Faxatorg 1, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar