Elvo lausnir ehf.
Elvo lausnir ehf.
Elvo lausnir ehf.

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu (Performance Marketing Specialist)

Elvo er vel fjármagnað íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í hröðum vexti og yfir 20 íslensk fyrirtæki nota lausnir okkar í dag, þar á meðal Samskip, World Class og Brauð & Co.

Hlutverkið snýst ekki um almenna vörumerkjanálgun eða að safna „deilingum“ og „smellum“. Markmið þitt er skýrt: Að hámarka nýtingu á markaðsfé og skila mældum demo-bókunum og hæfum sölutækifærum beint í sölupípuna.

Þú munt vinna þétt með framkvæmdastjóra og CTO, prófa nýja kanala, kafa í gögn og framkvæma umbætur jafnóðum. Þú stýrir markaðsfé með skýrt markmið um kostnað á hvern bókaðan fund.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýring herferða (Paid Media): Setja upp, vakta og optimera herferðir á Meta, Google Ads, LinkedIn og YouTube.

  • Conversion Rate Optimization (CRO): Greina ferðalag notenda frá auglýsingu yfir á lendingarsíðu (elvo.is) og fínstilla texta, hönnun og áfanga til að hækka hlutfall þeirra sem bóka kynningu.

  • Gagnagreining & A/B testing: Greina arðsemi (CPA, CPL, CAC) þvert á miðla. Stoppa það sem virkar ekki og skala það sem skilar raunverulegum viðskiptavinum.

  • Efnisframleiðsla & Skilaboð: Skrifa beinskeyttan sölutexta, búa til virkt efni (landing pages, kynningarefni, case studies) og nýta nýjustu tól til að framleiða efni hratt.

  • Retention & Funnel automation: Búa til og stýra póstherferðum (e-mail sequences) og retargeting (endurmarkaðssetningu) til að breyta heimsóknum í samninga.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gagnadrifinn hugsunarháttur: Þú skilur muninn á „landing page views“ og „mældum conversion“. Þú tekur ákvarðanir út frá gögnum, ekki tilfinningu.
  • Reikningslæsi í stafrænni markaðssetningu: Góð reynsla af Meta Ads Manager, Google Ads, GA4 og B2B targeting.

  • Copywriting & Sölutexti: Þú getur skrifað hvassan og sannfærandi texta sem hittir B2B markhópinn okkar beint í mark.

  • Frumkvæði og framkvæmd: Þú bíður ekki eftir stofu eða verktökum. Þú greinir tækifærið, setur upp tilraunina og mælir árangurinn sjálf/ur.

  • Reiknað er með reynslu eða menntun sem nýtist í starfi, en mældur árangur og praktísk færni vega þyngst.
Fríðindi í starfi
  • Bein áhrif: Þú færð fullt svigrúm til að móta og stýra vaxtarstefnu Elvo án millistjórnenda eða kerfisflækju.

  • Tilbúnir innviðir: Mælingar og tæknilegt tracking (pixel, CAPI, GA4, conversion-mælingar) eru til staðar. Þú mætir til að framkvæma og sjá beinan árangur.

  • Sveigjanleiki: Mældur árangur og framkvæmd skipta öllu máli frekar en viðverutími.

Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvagata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar