

Viðskiptastjóri B2B – sala, eftirfylgni og innleiðing
Elvo er vel fjármagnað íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í hröðum vexti. Við þróum tæknilausnir og nýtum gervigreind til að einfalda þjónustuferla fyrirtækja. Yfir 20 íslensk fyrirtæki nota Elvo í dag, þar á meðal Samskip, World Class og Brauð & Co.
Við leitum að drifnum viðskiptastjóra sem vill taka virkan þátt í að stækka viðskiptavinaflóru okkar og tryggja að nýir viðskiptavinir nái raunverulegum árangri með Elvo. Þú munt vinna þétt með framkvæmdastjóra í daglega söluharkinu, fundabókunum og innleiðingu á lausnum Elvo hjá viðskiptavinum. Við bjóðum upp á tækifæri til að starfa á hröðum vettvangi gervigreindar á íslenskum vinnumarkaði.
Hjá okkur eru boðleiðir engar og ákvarðanir teknar samstundis. Ef þú vilt sjá beinan árangur af þinni vinnu og vaxa með tæknifyrirtæki í örri þróun, þá er þetta rétti staðurinn.
-
Sölustarf og eftirfylgni: Fylgja eftir tækifærum (leads), bóka kynningarfundi, halda sölu-pípunni lifandi og landa samningum í samstarfi við framkvæmdastjóra.
-
Innleiðing og þjónusta (Onboarding & Client Success): Taka á móti nýjum viðskiptavinum, hjálpa þeim að taka fyrstu skrefin í kerfinu og tryggja að þeir fái hámarks virði úr lausnum okkar.
-
Ferla- og efnagerð: Búa til stuttar leiðbeiningar, upptökur (walkthroughs) og svör við algengustu spurningum til að straumlínulaga þjónustuferlið.
-
Greining tækifæra: Greina þarfir viðskiptavina og hvernig lausnir okkar leysa þeirra raunverulegu rekstrarvanda.
-
Drifkraftur í sölu: Þú hræðist ekki að fylgja eftir tækifærum, hringja, senda póst og bóka fundi. Þú mælir þinn eigin árangur í lokuðum sölum og ánægðum viðskiptavinum.
-
Tækniskilningur og áhugi á gervigreind: Ekki er gerð krafa um forritunarbakgrunn, en þú verður að skilja tækni, vera fljót/ur að læra á ný kerfi og geta útskýrt virkni gervigreindar á einfaldan hátt.
-
Framúrskarandi samskiptafærni: Góð framkoma, skýr textagerð á íslensku og geta til að byggja upp traust hratt.
-
Sjálfstæð vinnubrögð: Þú bíður ekki eftir að þér sé sagt hvað á að gera á hverjum morgni, heldur mætir þú með tilgang og klárar þau verk sem fyrir liggja.
- Reiknað er með reynslu eða menntun sem nýtist í starfi, en mældur árangur og praktísk færni vega þyngst.
-
Bein áhrif: Þú vinnur beint með stofnendum og færð tækifæri til að móta sölu- og þjónustuferla Elvo frá grunni.
-
Hraðari starfsframi: Lærdómur í B2B/SaaS vexti og nýtingu gervigreindar í raunverulegum rekstri.
-
Sveigjanleiki: Við mælum árangur í lokuðum sölum og ánægðum viðskiptavinum, ekki mætingu á stimpilklukku.
Íslenska










