

Stafrænn vöruhönnuður
Vilt þú taka þátt í að móta stafræna upplifun á stærsta skemmtistað í heimi? 🪩
Nova leitar að stafrænum vöruhönnuði í eitt af vöruteymum Nova. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á góðri upplifun, elskar að gera flókna hluti einfalda og vill hafa raunveruleg áhrif á hvernig viðskiptavinir upplifa Nova.
Þú verður hluti af þverfaglegu vöruteymi og vinnur náið með vörustjóra og þróunarteymi að því að skilja viðskiptavininn, finna réttu lausnirnar, prófa þær og koma þeim í loftið.
Hvað munt þú gera?
- Hanna flæði, viðmót og upplifun á vef og í appi
- Tala við viðskiptavini, prófa hugmyndir og komast að því hvað virkar – og hvað ekki
- Breyta hugmyndum hratt í frumgerðir sem við getum prófað og lært af
- Nota gögn og innsýn til að gera upplifunina stöðugt betri
- Vinna náið með öðrum hönnuðum þvert á vöruteymi og þróa saman hönnunarkerfi og stafræna upplifun Nova
- Fylgja hugmyndum frá fyrstu frumgerð að lausn sem viðskiptavinir nota
Hvað einkennir þig?
Þú hefur góða þekkingu á UX og UI, kannt vel á Figma og hefur reynslu af því að hanna stafrænar vörur og þjónustu.
Þú spyrð góðra spurninga og vilt skilja af hverju áður en þú ákveður hvernig. Þú kannt að nýta rannsóknir, notendaprófanir og gögn og átt auðvelt með að prófa nýja hluti, læra og skipta um skoðun.
Þú þarft ekki að vita allt – en þú þarft að hafa áhuga á að læra. Þú tekur vel í endurgjöf, deilir þekkingu og hefur gaman af því að vinna með öðrum hönnuðum að því að gera góða hluti enn betri.
Þekking á hönnunarkerfum og vörugreiningartólum eins og PostHog er stór plús.
