Center Hotels
Center Hotels
Center Hotels

Mannauðsráðgjafi

Center Hotels leitar að metnaðarfullum mannauðsráðgjafa sem er tilbúin að vinna í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi þar sem rík áhersla er lögt á mannauðsmál og þróun þeirra.

Mannauðsráðgjafi vinnur náið með framkvæmdarstjóra mannauðssviðs, ásamt öðrum stjórnendum fyrirtækisins, í að styðja við stefnu Center Hotels og viðhalda góðri vinnustaðarmenningu þar sem fólk fær að þróast og blómstra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með mannauðsmálum og daglegri eftirfylgni þeirra
  • Umsjón með ráðningum
  • Utanumhald á starfsmannagögnum og skráningu þeirra
  • Umsjón með kerfum mannauðsdeildar
  • Miðlun upplýsinga til starfsmanna og stjórnenda
  • Stuðningur við starfsmenn og stjórnendur
  • Þróun verkefna, ferla og kerfa
  • Önnur tilfallandi verkefni innan mannauðsdeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í mannauðsstjórnun, eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi, er kostur
  • Reynsla af mannauðsmálum er kostur
  • Þekking á kjara- og launamálum er mikill kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð enskukunnátta er skilyrði, og íslenskukunnátta er mikill kostur. Einnig er önnur tungumálakunnátta kostur
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar