
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Viðskiptastjóri einstaklinga á Selfossi
Vilt þú leiða öflugt teymi og hafa áhrif á upplifun viðskiptavina á einu stærsta þjónustusvæði Íslandsbanka?
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til starfa sem viðskiptastjóri einstaklinga í útibúi bankans á Selfossi. Um er að ræða lykilstjórnendastöðu þar sem þú berð ábyrgð á daglegri starfsemi einstaklingsþjónustu útibúsins, þróun og stuðningi við starfsfólk deildarinnar og vinnur markvisst að framúrskarandi þjónustu, sterkum viðskiptatengslum og árangri.
Viðskiptastjóri einstaklinga heyrir undir forstöðumann einstaklingsþjónustu og er hluti af stjórnendateymi sviðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðla að framúrskarandi viðskiptaupplifun og aukinni ánægju viðskiptavina
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við núverandi og nýja viðskiptavini
- Fylgja eftir markmiðum, árangri og söluþróun teymisins
- Leiða, styðja og þróa teymi gjaldkera og einstaklingsráðgjafa
- Bera ábyrgð á daglegri starfsemi og þjónustu við einstaklinga
- Greina tækifæri til vaxtar og vinna að stöðugum umbótum í þjónustu og rekstri
- Taka virkan þátt í þróun útibúsins og samstarfi innan bankans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur reynslu af stjórnun og leiðtogahlutverki
- Býr yfir sterkri þjónustu- og viðskiptahugsun
- Hefur framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Er árangursdrifinn og getur virkjað aðra til góðs árangurs
- Sýnir frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
- Hefur góða skipulagshæfni og getu til að forgangsraða verkefnum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 9, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniÁreiðanleikiFagmennskaFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSölumennskaStefnumótunTeymisvinnaVandvirkniVerkefnastjórnunVinna undir álagiViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Nettó Hrísalundi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Viðskiptastjóri
AÞ-Þrif ehf.

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur

Ræstitækni leitar að öflugum viðskiptastjóra til starfa á sölu-og markaðssviði fyrirtækisins
RæstiTækni

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Fjármálastjóri
GoPro

Kommunikasjonssjef (CCO)
Signatur AS

Yfirmaður þrifadeildar | Head of housekeeping
Íslandshótel

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf