Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Deildarstjóri búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu

Nýtt hlutverk Barna- og fjölskyldustofu felst í að sinna málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir út frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Barna- og fjölskyldustofa leitar því að framsæknum leiðtoga í stöðu deildarstjóra í búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Starfið felur í sér að leiða faglegt starf deildarinnar og tryggja að börn með fjölþættar stuðningsþarfir fái stuðning við hæfi í öruggu og stöðugu umhverfi.

Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á starfsemi og stjórnun deildar í samstarfi við forstöðumann.

  • Halda utan um daglegt og faglegt starf.

  • Hafa yfirsýn yfir þarfir, líðan og markmið barna og tryggja einstaklingsmiðaðan stuðning og eftirlit í samráði við forstöðumann og fagteymi sviðs búsetu og samþættrar þjónustu.

  • Samskipti við samstarfsaðila og forsjáraðila barnanna.

  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.

  • Skipulag vakta og mönnun ásamt umsjón með tímaskráningarkerfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA/BS próf sem nýtist í starfi.

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi kostur.

  • Reynsla af störfum með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.

  • Reynsla af stjórnun sem nýtist í starfi kostur.

  • Reynsla af skipulagningu vakta og tímaskráningarkerfi kostur.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli.

Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar