Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Deildarstjóri reikningshalds

Kópavogsbær leitar að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra reikningshalds.

Deildarstjóri ber ábyrgð á reikningshaldi Kópavogsbæjar og þeim verkefnum sem því tengjast, þar á meðal bókhaldi, innheimtu, afstemmingum og uppgjörum. Starfið felur jafnframt í sér virka þátttöku í þróun verklags, innra eftirlits og áframhaldandi sjálfvirknivæðingu og umbótum á ferlum.

Reikningshald heyrir undir skrifstofu áhættu- og fjárstýringar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón og ábyrgð á bókhaldi og innheimtu Kópavogsbæjar.
  • Ábyrgð á mánaðar-, árshluta- og ársuppgjörum, afstemmingum og uppgjörum til skattayfirvalda.
  • Ábyrgð á innra eftirliti, greiðsluflæði og eftirfylgni með kröfum og vanskilum.
  • Umsjón með fjárhagskerfi, skýrslugerð og greiningum úr bókhaldi.
  • Ráðgjöf til stjórnenda um reikningshalds-, uppgjörs- og innheimtumál.
  • Ábyrgð á verklagi og gæðaskjölum deildarinnar og þátttaka í þróun og sjálfvirknivæðingu ferla.
  • Önnur verkefni skv. ákvörðun yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða s.s. á sviði viðskiptafræði, fjármála, reikningsskila, endurskoðunar eða sambærilegu.
  • Farsæl reynsla af stjórnun og teymisuppbyggingu ásamt reynslu af þróun, umbótum og sjálfvirknivæðingu ferla.
  • Að lágmarki fimm ára reynsla af störfum við reikningshald. Kostur ef reynsla af reikningshaldi sveitarfélaga.
  • Góð þekking og færni á NAV/BC eða sambærileg fjárhagskerfi.
  • Greiningarhæfni, færni í Excel, nákvæmni og skiplögð vinnubrögð.
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfni ásamt góðri samskipta- og samstarfshæfni.
  • Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar