Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsmaður í Örva og Dvöl

Örvi er starfsþjálfun/iðja þar sem unnið er að því að styðja fatlað fólk til starfa á almennum vinnumarkaði með tímabundinni starfsprófun.

Dvöl er samfélagshús ætlað fólki með geðrænar áskoranir, þar sem markmiðið er að rjúfa einangrun og efla daglega virkni. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt umhverfi, og nálgast alla með virðingu.

Bæði í Örva og Dvöl er unnið eftir þeim meginhugmyndum sem birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að.

Leitað er að jákvæðum og drífandi einstaklingi til starfa í Örva og Dvöl. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í Örva:

  • Að framfylgja þjálfunaráætlunum og faglegu mati sem forstöðumaður og/eða starfsráðgjafar hafa umsjón með
  • Hafa umsjón með vinnu verkefna í vinnusal
  • Styðja einstaklinga með skerta starfsgetu í starfsprófun
  • Samskipti við viðskiptavini Örva, sjá um móttöku og skráningu pantana
  • Hafa umsjón með framleiðslu í plastvélum

Í Dvöl:

  • Að veita gestum hvatningu og stuðning á nærgætinn hátt
  • Að sinna innkaupum, eldamennsku einfaldra máltíða og daglegum þrifum
  • Skipulagning og framkvæmd smærri viðburða og samverustunda í vikudagskrá
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi, félagsliða- eða stuðningsfulltrúamenntun er kostur
  • Reynsla af vinnu með fötluðu fólki
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtakssemi og jákvætt viðhorf í starfi
  • Frumkvæði, vandvirkni og skipulagshæfileikar
  • Góð líkamleg geta og styrkur til að lyfta þungum hlutum
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reynihvammur 43, 200 Kópavogur
Kársnesbraut 110, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar