Þorláksskóli
Þorláksskóli
Þorláksskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla

Okkur vantar góða manneskju í hópinn.

Þorláksskóli er lítill, sérhæfður grunnskóli í Garðabæ fyrir einhverf börn. Við leitum að öflugum og traustum stuðningsfulltrúa sem hefur reynslu af starfi með fötluðum einstaklingum og vill taka virkan þátt í að skapa öruggan, fyrirsjáanlegan og góðan skóladag fyrir nemendur okkar.

Skólinn vinnur meðal annars eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á öryggi, tengslamyndun, skýra umgjörð, skynúrvinnslu og einstaklingsmiðað nám.

Um er að ræða 100% dagvinnustarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun taka mið af menntun og reynslu.

Umsækjandi þarf að geta framvísað hreinu sakavottorði.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir í netfanginu [email protected].

Heimasíða: www.thorlaksskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

• Bein vinna með nemendum

• Þátttaka í kennslu og daglegu skipulagi skólastarfsins

• Stuðningur við samskipti, sjálfstæði og þátttöku nemenda

• Aðlögun verkefna og umhverfis að þörfum hvers barns

• Náið samstarf við annað starfsfólk skólans

• Þátttaka í áframhaldandi mótun og uppbyggingu skólastarfsins

Menntunar- og hæfniskröfur

• Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum, helst börnum

• Viðeigandi háskólamenntun eða nám á háskólastigi er mikill kostur, til dæmis í þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, kennarafræði, uppeldis- eða félagsvísindum eða sálfræði

• Þekking á einhverfu, óhefðbundnum tjáskiptaleiðum, skynúrvinnslu eða skipulagðri kennslu er kostur

• Hlýlegt viðmót, yfirvegun og traust

• Frumkvæði, ábyrgð og góð samstarfshæfni

• Hæfni til að halda ró sinni þegar aðstæður verða krefjandi

• Virðing fyrir fjölbreytileika og styrkleikum einhverfra barna

Fríðindi í starfi

• Fjölbreytt og innihaldsríkt starf í litlum og persónulegum skóla

• Náið samstarf og stuðningur frá öflugu starfsfólki

• Regluleg fræðsla og fagleg handleiðsla

• Tækifæri til faglegs þroska

• Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og uppbyggingu nýs sérhæfðs skóla

• Starfsumhverfi þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi

Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar