

Fagaðili óskast til Þorláksskóla
Þorláksskóli leitar að hlýjum, traustum og úrræðagóðum fagaðila í 100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Þorláksskóli er nýr sjálfstætt starfandi grunnskóli í Garðabæ fyrir einhverf börn. Skólinn er lítill og persónulegur og leggur áherslu á öryggi, tengslamyndun, einstaklingsmiðað nám, skýra umgjörð og virðingu fyrir þörfum hvers barns.
Við leitum að þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða einstaklingi með aðra menntun sem nýtist vel í starfinu. Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum er mikilvæg.
Starfið felur meðal annars í sér:
-
Beina vinnu með nemendum
-
Þátttöku í kennslu, undirbúningi og skipulagningu skólastarfs
-
Aðlögun náms og umhverfis að þörfum hvers barns
-
Stuðning við samskipti, sjálfstæði, líðan og þátttöku nemenda
-
Samstarf við fjölskyldur, samstarfsfólk og aðra fagaðila
-
Þátttöku í áframhaldandi þróun og mótun nýs skóla
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Er þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða með aðra viðeigandi menntun
-
Hefur reynslu af starfi með fötluðum einstaklingum, helst einhverfum börnum
-
Er hlýr, yfirvegaður og lausnamiðaður
-
Getur sýnt frumkvæði en á jafnframt auðvelt með að vinna í teymi
-
Hefur áhuga á einstaklingsmiðuðu og skapandi skólastarfi
-
Mætir börnum af virðingu, þolinmæði og einlægum áhuga
Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að taka þátt í að byggja upp nýjan skóla frá grunni, í nánu samstarfi við öflugan og metnaðarfullan starfsmannahóp. Hér gefst raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif og þróa skólastarf sem tekur mið af þörfum barnanna.
Um er að ræða 100% dagvinnustarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi.
Umsókn, ferilskrá og stutt kynningarbréf berist á [email protected]. Umsóknir verða teknar til skoðunar jafnóðum og ráðið verður í starfið þegar rétti einstaklingurinn finnst.
Umsækjandi þarf að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Íslenska










