

Kennari á yngsta- og miðstig
Fellaskóli í Múlaþingi (við þéttbýli Egilsstaða) auglýsir eftir kennara á yngsta- og miðstig skólaárið 2026/2027. Starfshlutfall getur verið samkomulag. Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla. Starfið er laust nú þegar.
Fellaskóli er notalegur lítill skóli með um 80 nemendur. Við störfum samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Skólinn vinnur einnig skv. Heillasporum (e.Nurture), sem er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Við leggjum áherslu á útinám og höfum verið að þróa þá kennslu á öllum skólastigum undanfarin ár þar sem um samþættingu námsgreina og teymisvinnu er að ræða.
Staðan var auglýst þann 5. ágúst sl. með umsóknarfrest til 19. ágúst 2026 og er því auglýst í annað sinn.
- Annast kennslu nemenda í samráði i við skólastjórnendur og aðra kennara.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn).
- Góð hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Góð skipulagshæfni, jákvæðni, frumkvæði og reynsla.
- Góð íslenskukunnátta.
- Vilji til að starfa í teymum.
- Hreint sakavottorð.
Heilsueflingarstyrkur
Íslenska










