

Hjallastefnuskólinn Vífilsholt- Leikskólakennari/kennari eða leiðbeinandi með reynslu
Ertu leikskólakennari, kennari eða reyndur starfsmaður sem langar að vera með í uppbyggingu Leikskólans Vífilsholts. Við erum staðsett í náttúruperlunni við Vífilstaði. Skógurinn,vatnið,eldstæði og fjallið okkar gefur óendanleg tækifæri til könnunar og útikennslu. Stefnt er að stækkun leikskólans á komandi ári, en nú eru 48 börn á aldrinum 1-5 ára á Vífilsholti og stefnt er að því að skólinn taki um 80 börn haustið 2027.
Ertu jákvæður og lífsglaður kennari sem langar að tileinka þér starfshætti Hjallastefnunnar eða ert jafnvel Hjallastefnukennari sem langar að breyta til. Hér er góður starfsandi og gleði og gildin okkar eru kærleikur, sköpun og lýðræði í lífsmáta og starfi.
Við leitum af þér sem brennur fyrir góðum samskiputm og faglegum málum, og langar að taka þátt í uppbyggingu og stækkun leikskólans á komandi árum. Um er að ræða 100%.
- Virðingu fyrir börnum og öðru fólki
- Hafa ástríðu fyrir uppeldi og menntun ungra barna
- Góðir samskiptahæfileikar
- Kynna sér Hjallastefnu vinnubrögð og fylgja þeim
- Leikskólakennaramenntun
- Önnur uppeldismenntun
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Good Icelandic language skills required
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Útivist í dásamlegu umhverfi
- Frítt hollt fæði
- Starfsmannafatnaður
- Vinnustytting
- Þjálfun í starfi
- Einstakur hópur samstarfsfólks
Íslenska










