Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Verkefnastjóri í skipulagsmálum

Kópavogsbær leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra í skipulagsmálum / arkitekt til starfa á skipulagsdeild á umhverfissviði Kópavogsbæjar. Starfið heyrir undir skipulagsfulltrúa og felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði skipulagsmála, arkitektúrs og þróunar byggðar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á vandaðri bæjarmynd, sjálfbærri byggðarþróun og faglegri úrvinnslu skipulagsmála í góðu samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og aðra fagaðila. Starfið felur meðal annars í sér vinnslu skipulagsgagna, greininga, umsagna og kynningarefnis auk ráðgjafar um skipulagsmál og arkitektúr.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að afgreiðslu skipulagsmála
  • Tekur þátt í gerð og þróun aðal-, deili- og hverfisskipulags
  • Útbýr greiningar, uppdrætti, greinargerðir og kynningargögn
  • Þróar skipulagstillögur með áherslu á gæði byggðar, aðgengi og sjálfbærni
  • Vinnur faglegar greiningar á landnotkun og þróun byggðar
  • Sinnir grenndarkynningum, íbúasamráði og kynningu skipulagsverkefna
  • Vinnur umsagnir og afgreiðslutillögur fyrir skipulagsráð
  • Tekur þátt í gerð skipulagsskilmála og skipulagsgagna
  • Veitir faglega ráðgjöf um skipulagsmál og þróun byggðs umhverfis
  • Sinnir öðrum verkefnum sem starfsmanni eru falin af yfirmanni og falla að starfssviði hans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í arkitektúr eða önnur menntun sem uppfyllir skilyrði 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
  • Þekking og reynsla af skipulagsferlum sveitarfélaga, stjórnsýslumeðferð skipulagsmála og gerð skipulagsgagna
  • Reynsla af gerð eða yfirferð deiliskipulags, skipulagsskilmála, uppdrátta og greinargerða er æskileg
  • Góð þekking og færni í AutoCAD, landupplýsingakerfum og öðrum teikni- og gagnavinnslukerfum sem nýtast í starfi
  • Þekking á skjalavistunarkerfi er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og þjónustulipurð
  • Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og samviskusemi í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 klukkustunda vinnuvika.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar