

Leikskólinn Kiðagil: Deildarstjóri
Leikskólinn Kiðagil óskar eftir að ráða deildarstjóra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli.
Næsti yfirmaður deildarstjóra er skólastjóri.
Í Kiðagili er lögð áhersla á Leikskólalæsi á öllum deildum þar sem leikið er með bókstafi, rím og hljóð. Skólinn er umhverfisvænn og starfar eftir SMT-styðjandi skólafærni. Einkunnarorð skólans eru „fagmennska, virðing, leikur og læsi“.
Ertu hugmyndaríkur, lausnarmiðaður, jákvæður og duglegur einstaklingur með dygga þjónustulund og vilt vita meira? Þá hvetjum við þig til að kynna þér skólann okkar í rafrænni heimsókn á https://kida.is
Við leitum að góðum liðsfélaga sem vill hafa áhrif og taka þátt í að skapa framúrskarandi skólastarf. Langar þig til að vera með okkur í liði?
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
- Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
- Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.
- Vinnur eftir uppeldisstefnu SMT.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun sem nýtist í starfi leikskólans.
- Reynsla af stjórnun deilda er kostur.
- Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum, sveigjanlegum og mjög jákvæðum einstaklingi.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
- Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita leiða og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
- Þekking á SMT/PMTO er kostur
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska







