Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Aðallögfræðingur

Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum og reynslumiklum aðallögfræðingi með framúrskarandi þekkingu á sviði stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar.

Starfið heyrir beint undir skrifstofustjóra Alþingis og í því felst leiðandi sérfræðiráðgjöf á sviði lögfræði fyrir forystu þingsins og stjórnendur skrifstofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og lögfræðileg ráðgjöf fyrir forseta Alþingis, forsætisnefnd, skrifstofustjóra og framkvæmdastjórn
  • Lögfræðileg greining og álitsgerðir
  • Ráðgjöf um lagasetningu sem varðar starfsemi Alþingis og stofnanir þess
  • Rannsóknarstörf á sviði stjórnskipunarréttar, einkum varðandi starfsemi þjóðþinga
  • Virk þátttaka í umbóta- og stefnumótunarstarfi innan skrifstofunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði, viðbótarmenntun er kostur
  • Mjög góð þekking á stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti
  • Víðtæk þekking og reynsla af störfum innan opinberrar stjórnsýslu
  • Afburða samskiptafærni, jákvæðni og lipurð 
  • Mikil greiningarhæfni og færni til að miðla flóknum álitaefnum á skýran og aðgengilegan hátt
  • Góð færni í ritun lögfræðilegra texta, s.s. í formi minnisblaða og greinargerða, á íslensku og ensku. Þekking á norðurlandamáli er kostur
  • Þekking á starfsemi þjóðþinga er kostur
Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Embættispróf í lögfræðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar