
Lögfræðingur í slysa- og skaðabótamálum
Fulltingi óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan lögfræðing í tímabundna stöðu til 12 mánaða, með möguleika á framtíðarstarfi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á fagleg vinnubrögð, sjálfstæði og góða samskiptahæfni.
Helstu verkefni
- Lögfræðileg ráðgjöf og úrlausn fjölbreyttra mála
- Greining og mat á lögfræðilegum álitaefnum
- Yfirferð skjala, erinda og greinargerða
- Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra hagaðila
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
- Reynsla af tryggingamálum er kostur
- Reynsla af lögfræðistörfum er æskileg
- Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
Fulltingi er ein stærsta sérhæfða lögmannsstofa landsins á sviði slysa- og skaðabótamála. Hjá stofunni starfar reynslumikið teymi l sérfræðinga sem búa yfir víðtækri þekkingu á skaðabóta- og vátryggingarétti og leggja áherslu á faglega þjónustu og persónulega ráðgjöf fyrir skjólstæðinga sína.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í s. 511 1225.
Íslenska
Enska



