Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Viltu móta framtíð siglingaöryggis?

Siglingasvið Samgöngustofu óskar eftir að ráða einstakling í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á smíðalýsingum, teikningum og eftirlit með hönnun skipa. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á siglingaöryggi, stafrænni vegferð, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður. Starfið hentar jafnt nýútskrifuðum sem reynslumeiri sérfræðingum og er veitt góð þjálfun og stuðningur við að byggja upp sérþekkingu á sviði skipatækni.

Við bjóðum meðal annars upp á sveigjanlegt vinnufyrirkomulag, tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar, fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi og góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirfara teikningar og önnur hönnunargögn skipa með hliðsjón af gildandi reglum og stöðlum.
  • Veita faglega ráðgjöf og eiga samskipti við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
  • Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
  • Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á vettvangi IMO, EMSA og annarra samstarfsaðila.
  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. skipaverkfræði, skipatæknifræði, vélaverkfræði, véltæknifræði eða sambærilegt.
  • Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
  • Jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
  • Gott vald á ensku í rituðu og töluðu máli.
  • Góð íslenskukunnátta er kostur.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar