

Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Vilt þú mæla, greina og móta framtíð fjarskipta á Íslandi?
Hvað gerist þegar fjarskiptamerki truflast? Hvernig vitum við hvort farnet nái þeirri útbreiðslu og þeim þjónustugæðum sem kveðið er á um í tíðniheimildum? Og hvernig tryggjum við að fjarskiptainnviðir Íslands standist álag þegar mest reynir á?
Fjarskiptastofa leitar að tæknisinnuðum, forvitnum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa á Innviðasviði. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjarskiptatækni og vill vinna við fjölbreytt verkefni þar sem radíómælingar, tæknileg greining, gögn og fjarskiptainnviðir landsins mætast. Þetta er ekki starf þar sem allir dagar eru eins: einn daginn gætir þú verið að mæla og greina radíótruflun, annan daginn að vinna úr gögnum um útbreiðslu farneta og þann þriðja að taka þátt í verkefni sem snýr að því að tryggja fjarskipti á Íslandi þegar á reynir.
Hverju leitum við að?
Við horfum ekki eingöngu til ákveðins starfsheitis eða hefðbundins starfsferils heldur leitum að einstaklingi með tæknilegan áhuga, greiningarhæfni og löngun til að skilja hvernig hlutirnir virka. Þú gætir til dæmis komið úr fjarskiptum, rafmagns- eða rafeindatækni, tæknifræði, upplýsingatækni eða öðru tæknilegu umhverfi. Það sem skiptir okkur máli er að þú hafir gaman af því að takast á við tæknileg viðfangsefni, vinna með gögn og mælingar og leita svara við spurningunni: Hvað er að gerast og hvers vegna?
- Framkvæmd radíómælinga og annarra tæknilegra mælinga á fjarskiptakerfum á vettvangi víðs vegar um landið, ásamt greiningu og úrvinnslu mæligagna.
- Greining radíótruflana, þátttaka í úrlausn truflanamála og eftirlit með nýtingu ljósvakans.
- Mælingar og greiningar á útbreiðslu og þjónustugæðum farneta, m.a. til að meta hvort skilyrði tíðniheimilda séu uppfyllt.
- Vinna með tíðnigögn, kortagögn, gagnagrunn almennra fjarskipta (GAF) og önnur tæknileg gögn um fjarskiptainnviði, ásamt greiningu og úrvinnslu gagna og vinnu að gagnagæðum.
- Þátttaka í verkefnum tengdum áfallaþoli, rekstraröryggi, gervihnattafjarskiptum og nýrri fjarskiptatækni.
- Samskipti við fjarskiptafyrirtæki, almenning, stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila, auk þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
- Önnur tilfallandi verkefni Innviðasviðs.
- Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði, upplýsinga- eða fjarskiptatækni eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi, eða viðamikil og viðeigandi starfsreynsla af fjarskiptakerfum.
- Þekkingu eða reynslu af radíókerfum.
- Góða tæknilega færni og áhuga á að tileinka sér nýja tækni og aðferðir.
- Greiningarhæfni, nákvæm og öguð vinnubrögð og hæfni til sjálfstæðra vinnubragða.
- Góða samskipta- og samstarfshæfni.
- Góða færni í íslensku og ensku.
- Gild ökuréttindi eru skilyrði þar sem starfið felur í sér reglulegar vettvangsferðir vegna mælinga.
Það er kostur ef þú hefur þekkingu eða reynslu af:
- Farnetum, tíðnimálum eða útbreiðslu radíómerkja.
- Greiningu og úrvinnslu tæknilegra gagna.
- SQL, gagnagrunnum og úrvinnslu gagna.
- GIS, kortagögnum eða útbreiðslulíkönum.
Íslenska
Enska










