

Sérfræðingur á sölusviði
Hreint óskar eftir að ráða jákvæða, drífandi og sölumiðaða manneskju í fjölbreytt starf sérfræðings á sölusviði.
Viðkomandi verður hluti af öflugum hópi þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, fagleg vinnubrögð og árangur. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir og vill taka þátt í að byggja upp sterk og langtíma viðskiptasambönd.
Sala á þjónustu félagsins á fyrirtækjamarkaði
Öflun nýrra viðskiptavina og eftirfylgni sölutækifæra
Samskipti og ráðgjöf við núverandi og nýja viðskiptavini
Útreikningur, framsetning og frágangur tilboða og stærri verkefna
Þátttaka í útboðum í samstarfi við sölustjóra
Eftirfylgni með tilboðum og sölumálum
Önnur verkefni tengd sölu og þjónustu
Reynsla af sölu og viðskiptaþróun á fyrirtækjamarkaði
Góð almenn tölvukunnátta og talnagleggni
Skipulagsfærni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð samskiptafærni og þjónustulund
Jákvætt viðhorf og metnaður til að ná árangri
Hreint sakavottorð
Íslenska










