
Helix Health
Helix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Lausnir Helix ganga meðal annars út á að minnka þann tíma sem fer í skráningu hjá heilbrigðisstarfsfólki, auka öryggi skjólstæðinga og hagræða í rekstri heilbrigðisstofnana.

Viðskiptastjóri
Helix þróar hugbúnaðarlausnir sem heilbrigðisstarfsfólk um land allt reiðir sig á á hverjum degi. Við leitum nú að öflugum og metnaðarfullum viðskiptastjóra sem brennur fyrir því að byggja upp traust viðskiptatengsl, leiða vöxt og taka virkan þátt í að móta framtíð heilbrigðistækni á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp og viðhalda traustu sambandi við viðskiptavini.
- Selja og kynna hugbúnaðarlausnir og þjónustuframboð Helix
- Greina þarfir viðskiptavina og miðla þeim áfram innan fyrirtækisins
- Utanumhald um tilboðsgerð og samninga
- Náið samstarf þvert á fyrirtækið
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar
- Reynsla af B2B sölu er kostur
- Þekking af heilbrigðiskerfinu er kostur
- Reynsla af notkun CRM kerfa er kostur
- Góð íslenskukunnátta er krafa
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
- Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði
- Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar
- Samgöngustyrkur og íþróttastyrkur
- Líkamsræktaraðstaða í húsinu
- Frábært mötuneyti
- Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Ræstitækni leitar að öflugum viðskiptastjóra til starfa á sölu-og markaðssviði fyrirtækisins
RæstiTækni

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor