

Viðskiptastjóri á Lyfjasviði (Pfizer)
ICEPHARMA LEITAR AÐ SÖLUDRIFNUM OG METNAÐARFULLUM LIÐSMANNI TIL AÐ SINNA FJÖLBREYTTU OG KREFJANDI STARF FYRIR PFIZER
Pfizer er eitt af stærstu lyfjafyrirtækjum heims og býður upp á fjölbreytt vöruúrval.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs.
· Markaðssetning og sala lyfja til heilbrigðisstarfsfólks
· Kynningar, fræðslufundir og eftirfylgni
· Þátttaka í og skipulagning funda og ráðstefna hérlendis, erlendis og rafrænt
· Regluleg þjálfun og samskipti við Pfizer
· Þátttaka í markaðsgreiningum og áætlanagerð
· Verkefnastýring og þátttaka í útboðum í samstarfi við Pfizer
· Gerð umsókna um verð og greiðsluþátttöku lyfja
· Gerð lyfjaauglýsinga og markaðsefnis
· Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða raunvísinda
· Reynsla af sölu og markaðssetningu lyfja eða heilbrigðisvara
· Mikill drifkraftur og frumkvæði
· Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun, mannlegum samskiptum og teymisvinnu
· Hæfileikar til að setja sig inn í flókið fræðilegt efni og miðla því áfram
· Hæfileikar til og ánægja af að vinna faglega, sjálfstætt og skipulega að skýrum markmiðum
· Mjög gott vald á íslensku og ensku
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu. Við leggjum áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu, sveigjanlegt og fjölskylduvænt umhverfi og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Icepharma er hluti af samstæðunni Ósar hf. þar sem samtals starfa um 230 manns. Á Lyfjasviði starfa um 35 manns í frábærri liðsheild.
Umsókn skulu fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf sem lýsa áhuga og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Júlía Bernburg deildarstjóri Pfizer, [email protected].
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga.
Íslenska
Enska










