
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarúrræði sem veitir þverfaglega einstaklingsmiðaða endurhæfingu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við heila- og taugaskaða. Við sinnum endurhæfingu í dag- og sólarhringsþjónustu.

Hjúkrunarfræðingur hjá Kjarki endurhæfingu – erum við að leita af þér?
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Kjarki endurhæfingu. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem teymisvinna, sjálfstæði í starfi og góður starfsandi er í fyrirrúmi.
Um er að ræða hlutastarf á dagvöktum (virka daga og rauða daga) og fjórðu hverja helgi, ásamt bakvöktum eftir skipulagi. Starfshlutfall er umsemjanlegt. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarstofnun sem veitir einstaklingum á aldrinum 18-67 ára áframhaldandi endurhæfingu eftir að frumendurhæfingu lýkur. Markmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga við að aðlagast breyttum aðstæðum og auka hæfni og þátttöku í daglegu lífi.
Hjá Kjarki endurhæfingu starfar þverfaglegur hópur fagfólks við endurhæfingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meta þörf, skipuleggja og veita heildræna hjúkrunar- og endurhæfingarmeðferð
- Styðja skjólstæðinga í endurhæfingu
- Skipuleggja og veita fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda
- Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi með öðrum heilbrigðisstéttum
- Að stuðla að og þróa aðferðir til að bæta þjónustuna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Reynsla af endurhæfingarhjúkrun er kostur
- Fagleg vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Lausnamiðun og sjálfstæði í starfi
- Góð skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Stytting vinnuvikunnar
- Góð vinnuaðstaða
- Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur11. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali

Vaktstjórar í helgarvinnu
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Viðskiptastjóri á Lyfjasviði (Pfizer)
Icepharma

Söluráðgjafi hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild
Landspítali

Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur / ljósmóðir í ung- og smábarnavernd
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins