Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Vaktstjórar í helgarvinnu

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir vaktstjórum í helgarvinnu

Ert þú með jákvætt viðmót, faglegan metnað og vinnur sjálfstætt?

Sóltún hjúkrunarheimili leitar að öflugum vaktstjórum í fjölbreytt og ábyrgðarmikil helgarstörf, þar sem saman fara leiðtogahlutverk og umönnun íbúa. Leitað er að einstaklingum með frumkvæði, góða samskiptahæfni og áhuga á faglegu, uppbyggilegu starfsumhverfi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Staðsetning: Sóltúni 2, 105 Reykjavík

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á skipulagi, vöktum og stýringu verkefna
  • Almenn umönnunarstörf og hjúkrun íbúa
  • Samstarf við samstarfsfólk og annað fagfólk
  • Eftirfylgni með gæðum þjónustu og velferð íbúa
  • Önnur verkefni eftir aðstæðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðingur/sjúkraliði/hjúkrunar-eða læknanemi
  • Menntun viðurkennd á Íslandi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og faglegur metnaður
  • Jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
  • Hreint sakavottorð skilyrði

Starfskjör og fyrirkomulag

  • Fjölbreytt og krefjandi starf
  • Tækifæri til að þróast í starfi og taka þátt í uppbyggingu þjónustu
  • Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag samkvæmt samkomulagi
  • Möguleika á dag-, kvöld- eða næturvöktum um helgar
  • Laun eru greidd samkvæmt viðeigandi kjarasamningi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur

Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.

Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Sjúkraliði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar