

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Langar þig að vinna á nýrri, spennandi deild þar sem þú færð tækifæri til að taka þátt í að móta þjónustuna og hafa áhrif á hvernig hún þróast? Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum sjúkraliðum til starfa með okkur á nýrri bráðamatsdeild.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi bráðveikra sjúklinga sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymsivinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans. Deildin er opin allan sólarhringinn og unnið er í vaktavinnu.
Við bjóðum upp á sveiganleika í starfi hvað varðar starfshlutfall og vinnuskipulag. Upphaf starfs er samkomulag. Bæði nýútskrifaðir og reyndir sjúkraliðar eru hvattir til að sækja um.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska






































