Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Sjúkraliðar óskast til starfa

Við leitum að sjúkraliðum til starfa. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi.

Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.

Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Að veita skjólstæðingum Vífilsstaða líkamlega, andlega og félagslega aðhlynningu

- Verkefni tengd almennri umönnun

Menntunar- og hæfniskröfur

- Sjúkraliðamenntun eða í námi á sjúkraliðabraut

- Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg

- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

- Góð almenn tölvukunnátta

- Góð samskiptahæfni

- Þolinmæði og sveigjanleiki

- Góð íslenskukunnátta er æskileg

Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar