
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Starfsemi okkar er fjölbreytt og er markmið okkar að sinna forvörnum og útkallsþjónustu á þjónustusvæði okkar sem nær yfir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Við sinnum slökkvistarfi skv. lögum um brunavarnir, sjúkraflutningum á svæðinu, almannavörnum, björgun úr sjó, vötnum og utan alfaraleiða ásamt öflugu eldvarnaeftirliti. Starfsfólk okkar er tæplega 200 staðsett á fjórum slökkvistöðum, en á starfssvæði okkar býr 63% allra landsmanna.
Slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamaður - framtíðarstarf
Við leitum eftir öflugu fólki óháð kyni og uppruna til að sinna slökkvi- og björgunarstarfi og/eða sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu. Við leitum að starfsfólki sem vill láta gott af sér leiða og vill tilheyra öflugu liði. Um er að ræða vaktavinnu. Umsóknafrestur er til og með 31. ágúst nk.
Stefnt er að því að halda hlaupaprófin í vikunni 21.-26. september og sundpróf og inntökudaginn, þar sem þrek, hæð, innilokun og verkvit er kannað í vikunni á eftir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu
- Slökkvistarf
- Björgunarstörf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgilt sveinspróf, stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Aukin ökurétttindi C og C1E flokkur vegna slökkviliðs- og sjúkraflutninga. Umsækjendur mega taka aukin ökuréttindi eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
- Aukin ökuréttindi C1 vegna sjúkraflutninga. Umsækjendur mega taka aukin ökuréttindi eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
- Góð íslensku og enskukunnátta, kunnátta á þriðja tungumáli er kostur
- Færni í samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
Fríðindi í starfi
- Frí líkamsræktaraðstaða
- Frítt í sund á höfuðborgarsvæðinu
Auglýsing birt23. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliði - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Landspítali

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Sérfræðingur í forvörnum og öryggismálum fyrirtækja
Vörður tryggingar

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Starfsmaður í lyfjaskömmtun
Borgar Apótek

Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali

Móttökuritari á heilsugæslu
Heilsugæslan Kirkjusandi

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf