Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði - Heilsugæslan Hlíðum

Heilsugæslan Hlíðum auglýsir eftir öflugum sjúkraliða í tímabundið starf. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi. Starfið er fjölbreytt og gefandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Hlíðum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Á stöðinni ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í móttöku skjólstæðinga ásamt öðrum starfsmönnum stöðvarinnar

  • Framkvæmd ýmissa rannsókna og prófa

  • Umsjón með umhverfi starfseininga, birgðum og búnaði

  • Leiðbeiningar og fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra

  • Þátttaka í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stöðvarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem sjúkraliði.

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi 3 ára reynslu sem sjúkraliði

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Frumkvæði og geta til að forgangsraða verkefnum

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar